Notkunarskilmálar

Notkunar Skilmálar

Eftirfarandi skilmálar gilda um öll kaup sem fara fram á vefsæði Plánetu ehf. Með því að nota vefsíðuna okkar eða leggja fram pöntun, samþykkir þú þessa skilmála. Vinsamlegast lestu þá varlega of ef þú hefur einhverjar spurningar, sendu okkur tölvupóst á planeta@planeta.is

 

Ef eftirtalin orð eru notuð einhverstaðar á heimasíðu pláneta eiga þau við um fyrirtækið Pláneta ehf.

Ég/Við/Okkur

 

Þessi vefsíða er eign og rekin af

Pláneta ehf

kt: 480422-0740

sími: +354 888-5404

vsk: 144673

Grænakinn 5, 220 Hafnarfirði

 

Pláneta ehf áskilur sér rétt til að gera breytingar við þessa skilmála, vefsðíðuna eða verð fyrirvaralaust. Pláneta ehf áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun vegna rangs verðlags eða rangrar lager stöðu. Við áskilum okkur einnig þann rétt að fjarlægja vöru úr verslun okkar fyrirvaralaust. Skilmálar okkar eru í samræmi við Íslensk lög og reglur.

Vefsvæði Plánetu notar "öpp" aðrar síður til að ganga frá greiðslum og öðru, Pláneta hefur enga stjórnun yfir þeim aðilum og tekur enga ábyrgð á tjóni sem gæti orðið við notkun þeirra

 

Skattar og verð

Verð á heimasíðu okkar geta breyst fyrirvaralaust. Öll verð eru sýnd með vsk og kvittanir frá okkur sýna verð með vsk.

 

Sótt og heimsent

Engar sendingar verða gerðar á stórhátíðar dögum nema annað sé tekið fram.

Við sendum þér tölvupóst/skilaboð þegar sending er klár.

Pantanir geta verið sóttar til okkar án endurgjalds, en þá þarf að semja um afhendingar tíma.

Pantanir sem eru sóttar er hægt að nálgast á Grænukinn 5, 220 Hafnarfirði.

 

Allar sendingar eru afgreiddar af Dropp eða Póstinum, annað hvort í tiltekin Dropp/Póst box eða heim að dyrum. Dropp sendir heim í eftirfarandi bæjarfélögum.

Höfuðborgarsvæðið, Akranes, Eyrarbakki, Hella, Hveragerði, Hvolsvöllur,

Selfoss, Stokkseyri, Reykjanesbær, Þorlákshöfn

 

Sendingar verð í Dropp box:

  • Höfuðborgarvæðið, 750kr
  • Utan höfuðborgarsvæðis, 900kr
  • Ókeypis fyrir sendingar yfir 10.000isk

Verð fyrir sendingar heim að dyrum:

  • Höfuðborgarvæðið,
    • 1350kr 0-20 kg.
    • 2350kr 20-60 kg
  • Utan höfuðborgarsvæðis,
    • 1450kr 0-20 kg.
    • 2950kr 20-60 kg
  • Athugið að ekki er sent frítt heim að dyrum, þótt pöntun fari yfir 10.000kr.

Verð fyrir sendingar með póstinum eru samkvæmt verðskrá póstsins.

Sendingar fara út á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum og taka oftast 1-3 virka daga.

Sendingar fyrir 10.000 eða meira eru ókeypis ef valið er að fá sent í Dropp box. Þetta á ekki við um sendingar sendar heim að dyrum.

 

Vöru afhending

Allar pantanir eru teknar saman eftir að greiðsla hefur átt sér stað, eða strax næsta virka dag ef pöntun er greidd um helgi eða eftir klukkan 16:00.

Þú getur valið að sækja pöntun til okkar án greiðslu, en þá þarf að semja um afhendingar tíma. Í þeim tilfellum látum við þig vita þegar pöntun er tilbúin og bjóðum þig í heimsókn við fyrsta tækifæri.

 

Allar sendingar eru meðhöndlaðar af Dropp, og þegar sending hefur yfirgefið vöruhús taka skilmálar dropp við. Pláneta ehf tekur enga ábyrgð á slysum eða skemmdum sem gætu átt sér stað við flutning. Ef vara skemmist í flutningi, fellur ábyrgðin á kaupanda.

 

Ef svo skildi gerast að pöntuð vara sé ekki til á lager, mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingar tíma.

 

Skilastefna

Pláneta ehf hefur 14 daga skilastefnu, sem þýðir að kaupandi hefur 14 daga frá því hann fær vöruna afhenta til að biðja um að fá að skila vörunni.

Til að eiga rétt á að skila vöru, þarf varan að vera í sama standi og þegar hún var afhent. Ónotuð, með merkimiðum og í upprunalegum pakkningum. Þú þarft einnig að eiga kvittun til að sýna fram á kaup á tiltekinni vöru.

Til að hefja skil, skal kaupandi senda tölvupóst á planeta@planeta.is.

Ef skil á vöru eru samþykkt, sendum við viðkomandi upplýsingar um hvert og hvernig hann geti komið til að skila vöru. Ekki verður tekið við vörum sem eru sendar til okkar án þess að hafa fengið samþykki um skil á vöru.

Ekki hika við að hafa samband hafirðu einhverjar spurningar varðandi skil.

 

Skemmdir og gallar

Vinsamlegast skoðið vöru um leið og hún hefur verið afhent. Ef vara er gölluð, skemmd eða vitlaus, hafið strax samband og við förum yfir málið og gerum okkar besta til að allir verði sáttir.

Undantekningar/Vörur sem ekki er hægt að skila

Við bjóðum ekki uppa á skil á ákveðnum viðkvæmum vörum, (t.d. mat, leir og plöntum) eða sérútbúnum/sérmerktum vörum(vörum sem hefur verið breytt eða persónulega merktum vörum).

Vinsamlegast hafið samband ef þið hafið spurningar um ákveðnar vörur.

Því miður tökum við ekki á móti skilum á útsöluvörum eða vörum greiddum með gjafakortum.

 

Endurgreiðslur

Við munum láta þig vita eftir að samþykkt skilavara hefur borist okkur um hvenær endurgreiðsla gengur í gegn.  Það mun annað hvort vera gert í gegnum upprunalegan greiðslu máta eða með millifærslu. Hafið í huga að það getur tekið tíma fyrir banka eða kreditkorta fyrirtæki að vinna að ferli endurgreiðslna. Ef það hafa liðið meira en 15 virkir dagar, hafið samband við okkur í gegnum planeta@planeta.is

 

Persónuvernd

Pláneta ehf lofar kaupanda fullum trúnaði á öllum gögnum sem hann/hún/það/þau gefa upp við kaup á vöru. Upplýsingar verða aldrei seldar til þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Vafrakökur

Kökustefnu er hægt að finna hér.

 

Lög og varnarþing

Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Pláneta ehf og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum

 

Öryggi

Allar vörurnar okkar eru hugsuð sem verkfæri til að bæta skynjunarleik, og ættu aldrei að vera notuð án eftirlits forráðamanna.