Heildsala á einstökum skynjunarleikföngum
Jorika og Siggi sérhæfa sig í þekkingu á skynjunarleik og skynjunarleikföngum. Þau leggja mikla áherslu á að allar vörur séu eins vandaðar, gagnlegar og umhverfisvænar og vön er á. Allar vörur fara í gegnum langt ferli þar sem notagildi, kostir, gallar, framleiðsluaðferðir, efniviður og fleira eru skoðuð og metin.
Það eru ekki öll fyrirtæki sem standast strangar kröfur okkar og er því ágætis gæðastimpill ef vara er á boðstólnum í verslun okkar. Og enn frekar ef okkur líkar svo vel við framleiðandann að við sækjumst eftir því að verða dreifingaraðilar.
Hér getur þú fundið þá framleiðendur sem Pláneta hefur umboð fyrir á Ísland.
Jellystone Designs
Jellystone Design er leiðandi í nýsköpun öruggra, skemmtilegra sílikonskynjunar- og tanntökuleikfanga með gott notagildi.
Vörurnar frá Jellystone Design eru frábært verkfæri fyrir börn sem eru að nýta öll skynfærin til að uppgötva og skilja magnaða veröld okkar.
Makedo
Með smíðaverkfærunum frá Makedo geta börn og nemendur skorið út og fest saman pappa til að hanna og smíða á bæði öruggan og auðveldan máta og gert hugmyndir sínar að veruleika. Makedo býður upp á örugg, endurnýtanleg verkfæri sem gera nemendum kleift að hanna og smíða með hversdagslegum pappa sem alltaf er nóg til af. Þetta er grípandi leið til að styðja við sköpunargleði og kynna STEM-nám, lausnamiðaða hugsun og samvinnu. Almennt geta börn eldri en 4 ára unnið með Makedo með aðstoð fullorðinna og börn eldri en 7 ára geta unnið alveg sjálfstætt.
Makedo býður einnig upp á framúrskarandi stuðning fyrir kennslu og kennara í gegnum ókeypis kennsluvef Makedo: https://hub.make.do/
Tambú
Við kynnum með stollti Tambú stáltungutrommuna frá Juegoconmigo.
Tambú-stáltungutrommurnar eru skapandi hágæða hljóðfæri sem bjóða töfrandi upplifun fyrir bæði börn og fullorðna, með einstökum og fallegum hljóm.
Nótnahefti, kjuðar og burðarpoki fyrir trommuna fylgja með öllum Tambú trommum.