Fígúru Túba - Drekar
-
Áætluð afhending: Nov 06 - Nov 10
-
Frí sending í dropp box:
Fyrir allar pantanir yfir 15.000
Fígúru Túba - Drekar
Eftir að hafa sofið í öldum saman, eru drekarnir loks komnir á ról og vilja teygja aðeins úr vængjunum. Þessi Túba inniheldur 6 dreka af mismunandi stærðum og gerðum en þeir eiga það þó sameiginlegt að vera mjög svangir eftir langan svefn.
Drekar eru þekktir fyrir að halda sig oftast frá öðrum og þykir best að lúra einir í hellum sínum, nema einhver raski ró þeirra. Þessir drekar hérna hafa hins vegar breitt út vængi sína og eru að halda til byggða í leit að börnum að leika við. Þessi Túba hentar vel til alls konar skynjunarleiks og eru drekarnir einnig fallegt skraut þegar þeir eru ekki í notkun.
Allar Túbur® eru hannaðar með skemmtun og öryggi barna í fyrirrúmi.
Hentar vel fyrir 3 ára og eldri.