Töfrandi Leiksilki
-
Áætluð afhending: Oct 21 - Oct 25
-
Frí sending í dropp box:
Fyrir allar pantanir yfir 15.000
Töfrandi Leiksilki
Töfrandi leiksilkin eru handlituð úr náttúrulegum efnum. Þau eru 88 x 88cm úr gullfallegu og léttu (5 momme) 100% hreinu mórberja silki.
Pláneta mælir með: Ef það er kominn tími til að þvo leiksilkið, er um að gera að setja smá volgt vatn í baðkarið eða skynjunarbakka og leyfa barninu svo að þvo silkið sjálft. Það fær að upplifa alveg nýja skynjun frá blautu leiksilkinu ásamt ánægjunni sem fylgir að fá að hjálpa til.
Leiksilkin eru þróuð eftir Waldorf kennslufræðunum og eru notuð við kennslu og leik víðsvegar um heiminn.
Töfrandi leiksilkið kemur í 5 mismunandi litum:
- Regnbogi - Marglita
- Blómstur - Bleikur og Lavender blanda
- Eldur - Rauður og appelsínugulur
- Sjór- Blár og túrkísblár
- Stjörnur - Gull stjörnur á bláum bakgrunn
Leiksilkin eru lituð með öruggum og umhverfisvænum litum.
Umhirða:
Hand þvoið með mildri sápu og volgu vatni. Hengið svo upp til að þurrka og straujið til að endurheimta gljáann.