Yellow Door
Steinkúlur- Finndu Slökun
Steinkúlur- Finndu Slökun
Deila
Þessar grípandi slökunar kúlur eru frábært verkfæri fyrir barnið til að slaka á og finna ró frá amstri dagsins. Að rúlla boltunum í leir eða sand, býr til einstök og falleg skynjunarmynstur sem hvetja barnið til að snerta og skoða. Börn sogast inn í slakandi undraheim við á meðan þau rúlla kúlunum og ákveða hvaða leið skal rúlla henni næst. Fleiri hugmyndir að leik með steinkúlurnar má finna hér!
Þetta sett inniheldur: fiskiskóla, öldur, ský, fjaðrir, stjörnur og hjörtu.
- Inniheldur 6 steinkúlur
- Hver kúla er 45mm
- Búið til úr stein/trjákvoðu blöndu
- Aldur 2+
Aðeins um skynjunar steinanna:
Einfaldleikinn gefur steinunum alveg einstakt útlit. Gerðir úr einstakri stein/trjákvoðu blöndu sem gerir þeim kleift að þola flestar aðstæður, og eru eins og nýjir eftir að hafa verið þrifnir.
Umhirða:
Steinarnir eru nógu sterkir til að vera notaðir allt árið, í hvaða veðri sem er. Þrífið með volgu vatni og uppþvottalög.
Skynjunarsteinar
Helstu eiginleikar
Skynjunarsteinarnir eru alveg einstök skynjunarleikföng. Þrátt fyrir að vera harðgerðir eru þeir einnig ótrúlega mjúkir viðkomu. Hvert sett af skynjunar steinum hefur einstaka áferð og eru því frábærir til að örfa snertingu.
Pláneta mælir með
Leyfið barninu að þrífa steinana eftir leik. Það gleymist oft hvað börn geta haft gaman af því að fá að hjálpa til við tiltekt, svo geta þrif einnig verið skemmtilegur skynjunarleikur. Setjið smá volgt vatn í plastskál eða bala og leyfið barninu að skrúbba steinana með uppþvottaburstanum.
Meðhöndlun og þrif
Heima er alltaf best, en tilbreyting er góð fyrir börn og fullorðna. Hvernig væri að fara aðeins útúr hreinlætinu, skella sér í regngalla og leika sér aðeins í drullunni?
Skolið svo af skynjunar steinunum með volgu vatni og mildri sápu. Ef það dugir ekki til er um að gera að grípa í uppþvottaburstann.
Endingargóðir og umhverfisvænir
Skynjunar steinarnir eru gerðir úr einstakri stein/trjákvoðu blöndu sem gerir þeim kleift að vera notaðir inni og úti, sama hvernig veðrar.
Aðrar vörur sem henta einstaklega vel með skynjunar steinunum
Leir
Mjúki leirinn okkar hentar einstaklega vel með flestum skynjunar steinum. Hægt er að nota steinana til að stimpla eða rúlla í leirinn, og svo er hægt að búa til ýmisskonar áhöld og umhverfi úr leirnum til að fullkomna skynjunarleikinn.
Vinsælustu vörurnar okkar
-
Töfrandi Leiksilki
Venjulegt verð Frá 4.490 krVenjulegt verðEiningar verð / af -
DIY Slökunarflaska
Venjulegt verð 3.990 krVenjulegt verðEiningar verð / af -
Vara uppseld
Viðarkubba Stimpill
Venjulegt verð 1.090 krVenjulegt verðEiningar verð / afVara uppseld
Gakktu til liðs við Plánetu
Og vertu partur af veröld tileinkaðri skynjunarleik