Staflskálar Sjávarlíf
-
Áætluð afhending: Oct 17 - Oct 21
-
Frí sending í dropp box:
Fyrir allar pantanir yfir 15.000
Staflskálar Sjávarlíf
Staflskálarnar koma fimm saman í setti ásamt fimm fjársjóðspeningum. Frábært leikfang sem hjálpar börnunum að uppgötva heim sjávarlífsins í gegnum skynjunarleik. Raðaðu þeim, feldu hluti undir þeim, stimplaðu með þeim í sand, drullu og leir eða finndu hvaða skál passar við hvaða pening.
Tilvalið til að gera baðið eða skynjunarleikinn ennþá skemmtilegri!
Frábært leikfang til að taka með í baðið! Hvaða skálar fljóta og hvaða skálar sökkva? Hvað er þessi skál lengi að sökkva? Geturðu kastað og hitt fjársjóðspening ofan í eina af skálinni?
Lærðu um sjávardýrin með myndunum á skálunum. Hver skál hefur einstakt sjávardýr til að fræðast um og skoða: Hvali, hákarla, skjaldbökur, kolkrabba og krabba.
Búnir til úr ótrúlega skemmtilegu matvælasílikoni sem þolir vel bleytu og þornar án þess að laða að sér myglu eða önnur óhreinindi. Sílikonið endist einstaklega vel og er tilbúið í allar gerðir af skynjunarleik.
Það sem þú þarft að vita:
- Inniheldur 5 stöflunarskálar og 5 fjársjóðspeninga. 10 stk samtals.
- Fullkomið leikfang til að stafla og raða.
- Hægt að nota sem ílát í drullumall.
- Hver skál inniheldur einstaka mynd af sjávardýri.
- Skálarnar falla vel ofan í hvor aðra og taka þannig mjög lítið pláss.
- Fullkomið baðleikfang til að ausa og skvetta.
Stærðir: 11 x 9 x 9cm.
Má setja í uppþvottavél eða þvo með volgu sápuvatni. Skálarnar þola að vera settar í frysti!
Aldursviðmið: 9 mánaða +