Yellow Door
Skynjunar Steinar - Lærum Um Sjávarbakkann
Skynjunar Steinar - Lærum Um Sjávarbakkann
Deila
Lærum um sjávarbakkann er frábært verkfæri til að fræðast um lífríkið sem hægt er að finna í fjörunni.
Ýtið steinunnum í sand, drullu eða mold til að búa til skemmtillega mynd sem börnin geta skoðað. Hvaða lífveru skyldu þau finna næst? Börnin geta svo skráð niðurstöður með að leggja blað á steinanna og taka í gegn eða notað leir og stimplað í hann.
Þegar leiknum er lokið er svo frábær skemtun að leyfa börnunum að skola af steinunum með volgu vatni og mildri sápu, svo allt sé klappað og klárt til að endurtaka leikinn aftur daginn eftir.
Þessir tvíhliða skynjunar steinar eru fullkomnir til kveikja áhuga á umhverfi sínu og ströndinni. Svo læra þau skemmtilega fróðleik í leiðinni.
Inniheldur 8 tvíhliða steina: Auger skel, Krabba, Marglittu, Humar, Nautilus skel, Þara, Krossfisk og Whelk skel.
- Stærð u.þ.b. 80x65mm
- Búið til úr stein/trjákvoðu blöndu
- Aldur 2+
Hlekkur á leikhugmyndir frá Yellow door.
Aðeins um skynjunar steinanna:
Einfaldleikinn gefur steinunum alveg einstakt útlit. Gerðir úr einstakri stein/trjákvoðu blöndu sem gerir þeim kleift að þola flestar aðstæður, og eru eins og nýjir eftir að hafa verið þrifnir.
Umhirða:
Steinarnir eru nógu sterkir til að vera notaðir allt árið, í hvaða veðri sem er. Þrífið með volgu vatni og uppþvottalög.
Skynjunarsteinar
Helstu eiginleikar
Skynjunarsteinarnir eru alveg einstök skynjunarleikföng. Þrátt fyrir að vera harðgerðir eru þeir einnig ótrúlega mjúkir viðkomu. Hvert sett af skynjunar steinum hefur einstaka áferð og eru því frábærir til að örfa snertingu.
Pláneta mælir með
Leyfið barninu að þrífa steinana eftir leik. Það gleymist oft hvað börn geta haft gaman af því að fá að hjálpa til við tiltekt, svo geta þrif einnig verið skemmtilegur skynjunarleikur. Setjið smá volgt vatn í plastskál eða bala og leyfið barninu að skrúbba steinana með uppþvottaburstanum.
Meðhöndlun og þrif
Heima er alltaf best, en tilbreyting er góð fyrir börn og fullorðna. Hvernig væri að fara aðeins útúr hreinlætinu, skella sér í regngalla og leika sér aðeins í drullunni?
Skolið svo af skynjunar steinunum með volgu vatni og mildri sápu. Ef það dugir ekki til er um að gera að grípa í uppþvottaburstann.
Endingargóðir og umhverfisvænir
Skynjunar steinarnir eru gerðir úr einstakri stein/trjákvoðu blöndu sem gerir þeim kleift að vera notaðir inni og úti, sama hvernig veðrar.
Aðrar vörur sem henta einstaklega vel með skynjunar steinunum
Leir
Mjúki leirinn okkar hentar einstaklega vel með flestum skynjunar steinum. Hægt er að nota steinana til að stimpla eða rúlla í leirinn, og svo er hægt að búa til ýmisskonar áhöld og umhverfi úr leirnum til að fullkomna skynjunarleikinn.
Vinsælustu vörurnar okkar
-
Töfrandi Leiksilki
Venjulegt verð Frá 4.490 krVenjulegt verðEiningar verð / af -
DIY Slökunarflaska
Venjulegt verð 3.990 krVenjulegt verðEiningar verð / af -
Vara uppseld
Viðarkubba Stimpill
Venjulegt verð 1.090 krVenjulegt verðEiningar verð / afVara uppseld
Gakktu til liðs við Plánetu
Og vertu partur af veröld tileinkaðri skynjunarleik