Skynjunar Steinar - Fuglar
-
Áætluð afhending: Oct 12 - Oct 16
-
Frí sending í dropp box:
Fyrir allar pantanir yfir 15.000
Skynjunar Steinar - Fuglar
Þetta glæsilega safn af átta raunverulegum fuglum er fullkomið fyrir alls konar útiævintýri! Áþreifanleg og raunveruleg smáatriði vekja forvitni og umræður á sama tíma og þau veita dásamlega skynörvun. Sterkur grunnurinn gerir það að verkum að fuglarnir standa auðveldlega og eru því fjölhæfir í ímyndunar- og hlutverkaleiki þar sem orðaforði og sagnahæfileikar barna fá flug.
Börnin munu hafa gaman af því að nota stækkunargler til að skoða nákvæmar merkingar þeirra, bera þær saman við hver aðra og við fugla á svæðinu og þróa þannig samanburðar- og flokkunarhæfileika sína. Áþreifanlegu merkingarnar má bæði koma við og sjá.
Börnin munu svo hafa gaman af því að safna náttúrulegum efnum til að búa til hreiður fyrir fuglana.
Settið inniheldur 8 mismunandi fuglategundir
- Inniheldur 8 fígúrur.
- Stærð 70-90mm
- Búið til úr stein/trjákvoðu blöndu
- Aldur 2+
Aðeins um skynjunar steinanna:
Einfaldleikinn gefur steinunum alveg einstakt útlit. Gerðir úr einstakri stein/trjákvoðu blöndu sem gerir þeim kleift að þola flestar aðstæður, og eru eins og nýjir eftir að hafa verið þrifnir.
Umhirða:
Steinarnir eru nógu sterkir til að vera notaðir allt árið, í hvaða veðri sem er. Þrífið með volgu vatni og uppþvottalög.