Skynjunar Steinar - Fiðrildi
-
Áætluð afhending: Oct 17 - Oct 21
-
Frí sending í dropp box:
Fyrir allar pantanir yfir 15.000
Skynjunar Steinar - Fiðrildi
Þetta heillandi úrval af átta áþreifanlegum fiðrildum er fullkomið fyrir náttúrutengda afþreyingu jafnframt inni sem úti. Fiðrildin standa á traustum grunni og henta því vel í ímyndunar- og hlutverkaleiki þar sem börn geta þróað með sér ríkan orðaforða og eflt frásagnarhæfileika á meðan þau flögra um í töfrandi ævintýrum!
Fiðrildin eru einstaklega skemmtileg fyrir skynfærin þar sem hægt er að bæði sjá og finna fyrir smáatriðunum svo börnin munu hafa gaman af því að gera mót í leir eða þrykkja myndir með vaxlitum.
Fiðrildin eru tilvalin til rannsókna þar sem börn geta borið saman lögun og smáatriði vængjanna og kannað hvort þau líkist fiðrildum í nærumhverfinu. Með því að skoða lita- og áferðareiginleika þeirra þjálfa börn samanburðar- og flokkunarhæfni og auka við lýsandi orðaforða sinn á meðan þau ræða hvað sé líkt eða ólíkt með fiðrildunum.
- Inniheldur 8 fiðrildi.
- Stærð 56-68mm.
- Búið til úr stein/trjákvoðu blöndu.
-
Aldur 2+
Aðeins um skynjunar steinanna:
Einfaldleikinn gefur steinunum alveg einstakt útlit. Gerðir úr einstakri stein/trjákvoðu blöndu sem gerir þeim kleift að þola flestar aðstæður, og eru eins og nýjir eftir að hafa verið þrifnir.
Umhirða:
Steinarnir eru nógu sterkir til að vera notaðir allt árið, í hvaða veðri sem er. Þrífið með volgu vatni og uppþvottalög.