Sarah's silk

Leiksilki - Leitið og Finnið Ævintýri

Leiksilki - Leitið og Finnið Ævintýri

Venjulegt verð 3.790 kr
Venjulegt verð Útsölu verð 3.790 kr
Útsala Vara uppseld
Skattur innifalinn.
Leiksilkið „leitið og finnið ævintýri“ mun verða ELSKAÐUR fastagestur í sögustundum með börnunum ykkar. Börnin njóta þess að láta söguna leiða sig áfram, ímynda sér hana, og leika hana síðan eftir á leiksilkinu! Börnin munu svo einnig búa til sínar eigin sögur til að segja.

Hægt er að nota þetta einstaka og fallega leiksilki með nokkrum af þekktustu ævintýrapersónunum.

Leiksilkið „leitið og finnið ævintýri“ inniheldur persónur eða kennileiti úr eftirtöldum sögum:
  • Garðabrúða
  • Prinsessan og froskurinn
  • Pétur Pan
  • Þyrnirós
  • Rauðhetta
  • Hans og Gréta
  • Gullbrá og birnirnir þrír
  • Mjallhvít og dvergarnir sjö

Leitið og finnið silkin eru 53x74cm og gerð úr 100% hreinu mórberja silki.

Myndskreitt af @mhairi.hellbrandt

Umhirða:

Handþvoið með mildri sápu og volgu vatni. Hengið svo upp til að þurrka og straujið til að endurheimta gljáann.


Skoða fulla lýsingu

Afhverju að velja Pláneta.is

Aðrir vöruflokkar sem þú gætir haft áhuga á.

Fígúru Túbur

Túburnar eru frábær viðbót til að fullkomna skynjunarbakkann.
Hver túba inniheldur frá 6-14 fígúrur sem bjóða upp á ýmis viðfangsefni, svo sem: skordýr, sjávardýr, blóm, líffæri, fljúgandi farartæki og margt margt fleira.

Skoða úrval

Leiksilki

Leiksilki eru frábært verkfæri fyrir skynjunarleik að öllu tagi. Leiksilkin eru einstaklega mjúk og falleg með æðislega áferð og eru því algjör sprengja fyrir bæði sjón og snertingu. Leiksilkin bjóða upp á alveg opin leik, og það er ótrúlegt að fylgjast með barninu leika sér að því og sjá hvað þvi dettur í hug. Leiksilkin eru gerð út 100% hreinu 5 momme mórberja silki og handlituð með eiturefnalausum litum.

Skoða úrval

Clicques

Clicques eru einstaklega falleg og vandöð skynjunarleikföng. Clicques eru handgerðar úr hágæða agnbeykivið sem gefur þeim alveg einstakt útlit. Clicques eru í 3 pörtum sem haldast saman með seglum og er hægt að skipta þeim út eins og manni sýnist. Clicques koma í alveg plastlausum umbúðum og er hægt að nýta kassann þeirra sem dúkku hús.

Skoða úrval