Leiksilki - Frumskógar Kort
-
Áætluð afhending: Oct 09 - Oct 13
-
Frí sending í dropp box:
Fyrir allar pantanir yfir 15.000
Leiksilki - Frumskógar Kort
Frumskógar kortið er handlitað og er minni útgáfa af klassísku leiksilkjunum. Frumskógar leiksilkið er litríkt, iðar af lífi og hentar því vel í hlutverkaleiki eða sögustund.
Pláneta mælir með: Ef það er kominn tími til að þvo leiksilkið, er um að gera að setja smá volgt vatn í baðkarið og leyfa barninu svo að þvo silkið sjálft. Það fær að upplifa alveg nýja skynjun frá blautu leiksilkinu ásamt ánægjunni sem fylgir að fá að hjálpa til.
Leiksilkin eru þróuð eftir Waldorf kennslufræðunum og eru notuð við kennslu og leik víðsvegar um heiminn.
Kortið er 53x53cm úr 100% silki. Litað með öruggum og umhverfisvænum litum.
Umhirða:
Hand þvoið með mildri sápu og volgu vatni. Hengið svo upp til að þurrka og straujið til að endurheimta gljáann.