Pláneta
Leikkort - Hvernig Líður Þér Í Dag?
Leikkort - Hvernig Líður Þér Í Dag?
Deila
Að notast við leikkort er skapandi og skemmtileg athöfn hönnuð til að hjálpa börnum að tjá og skoða tilfinningar sínar í leik. Þetta samvinnuverkefni felst í því að móta andlitssvipi með litríkum leir sem hægt er að nota til að tengja við og tákna mismunandi tilfinningar. Þannig geta börnin geti komið líðan og skoðunum sínum til skila á skemmtilegan og hugmyndaríkan máta.
Þessi virkni hefur jákvæð áhrif á:
Tilfinningaþroska
Samskiptahæfileika
Hæfni til að tjá tilfinningar sínar
Gott er að nota opnar spurningar eins og:
"Af hverju líður þér svona í dag?"
"Hefur þér liðið svona áður? Hvað varstu að gera þá?"
"Geturðu hugsað dæmi þar sem einhverjum öðrum leið eins og þér líður núna?"
"Ef þú þyrftir að gefa tilfinningunni nafn, hvað myndir þú kalla hana og af hverju?"
Við mælum með að plasta inn blaðið ef þið hafið tök á svo hægt sé að nota það aftur og aftur.
Aðrir vöruflokkar sem þú gætir haft áhuga á.
Fígúru Túbur
Túburnar eru frábær viðbót til að fullkomna skynjunarbakkann.
Hver túba inniheldur frá 6-14 fígúrur sem bjóða upp á ýmis viðfangsefni, svo sem: skordýr, sjávardýr, blóm, líffæri, fljúgandi farartæki og margt margt fleira.
Leiksilki
Leiksilki eru frábært verkfæri fyrir skynjunarleik að öllu tagi. Leiksilkin eru einstaklega mjúk og falleg með æðislega áferð og eru því algjör sprengja fyrir bæði sjón og snertingu. Leiksilkin bjóða upp á alveg opin leik, og það er ótrúlegt að fylgjast með barninu leika sér að því og sjá hvað þvi dettur í hug. Leiksilkin eru gerð út 100% hreinu 5 momme mórberja silki og handlituð með eiturefnalausum litum.
Clicques
Clicques eru einstaklega falleg og vandöð skynjunarleikföng. Clicques eru handgerðar úr hágæða agnbeykivið sem gefur þeim alveg einstakt útlit. Clicques eru í 3 pörtum sem haldast saman með seglum og er hægt að skipta þeim út eins og manni sýnist. Clicques koma í alveg plastlausum umbúðum og er hægt að nýta kassann þeirra sem dúkku hús.
Gakktu til liðs við Plánetu
Og vertu partur af veröld tileinkaðri skynjunarleik