Jellystone Design
Áfylling Fyrir Slökunarflöskur
Áfylling Fyrir Slökunarflöskur
Deila
Fylltu á og endurnýttu DIY skynjunarflöskurnar þínar, með þessum einstöku áfyllingum. Áfyllingarnar koma í mismunandi þemum og eru fullar af glimmeri og áhugaverðum smáhlutum svo barnið geti búið til sína eigin skynjunarflösku.
Það hefur aldrei verið einfaldara að búa til skynjunarflösku!
Þú einfaldlega hellir innihaldi pakningarinnar í sökunarflöskuna og fyllir svo upp með vatni. Svo má auðvitað nota þetta með hvaða flösku sem er.
Þær áfyllingar sem eru í boði eru: Ljós í myrkri, Regnbogi og Hafið.
Fyrir frekari upplýsingar eða innblástur um hvernig hægt sé að nýta skynjunarflöskurnar geturðu kíkt á Pinterest-síðu Jellystone Design.
Umhirða: Við mælum með að skipta vatninu og innihaldi flöskunnar á nokkra mánaða fresti.
Stærð: 7 x 11 x 2 cm
Aldursviðmið: 3 ára og eldri
Aðrir vöruflokkar sem þú gætir haft áhuga á.
Fígúru Túbur
Túburnar eru frábær viðbót til að fullkomna skynjunarbakkann.
Hver túba inniheldur frá 6-14 fígúrur sem bjóða upp á ýmis viðfangsefni, svo sem: skordýr, sjávardýr, blóm, líffæri, fljúgandi farartæki og margt margt fleira.
Leiksilki
Leiksilki eru frábært verkfæri fyrir skynjunarleik að öllu tagi. Leiksilkin eru einstaklega mjúk og falleg með æðislega áferð og eru því algjör sprengja fyrir bæði sjón og snertingu. Leiksilkin bjóða upp á alveg opin leik, og það er ótrúlegt að fylgjast með barninu leika sér að því og sjá hvað þvi dettur í hug. Leiksilkin eru gerð út 100% hreinu 5 momme mórberja silki og handlituð með eiturefnalausum litum.
Clicques
Clicques eru einstaklega falleg og vandöð skynjunarleikföng. Clicques eru handgerðar úr hágæða agnbeykivið sem gefur þeim alveg einstakt útlit. Clicques eru í 3 pörtum sem haldast saman með seglum og er hægt að skipta þeim út eins og manni sýnist. Clicques koma í alveg plastlausum umbúðum og er hægt að nýta kassann þeirra sem dúkku hús.
Gakktu til liðs við Plánetu
Og vertu partur af veröld tileinkaðri skynjunarleik